Fotbolti.net
25.07.20 - 18:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Klopp: Veit ekki hverjir spila fyrir mig á næsta ári

Thiago hefur verið orðaður við Liverpool.

Thiago hefur verið orðaður við Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

„Ég veit ekki hverjir spila fyrir mig á næsta ár. Það er ekkert að segja á þessari stundu," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, aðspurður hvort Thiago Alcantara, leikmaður Bayern Munchen, væri á leiðinni til Liverpool.
„Thiago er frábær leikmaður í eigu Bayern Munchen. Það er allt sem ég hef að segja. Ég hef ekkert að segja," bætti Klopp við.

Liverpool er sagt hafa áhuga á þessum spænska miðjumanni Bayern og gæti Thiago verið falur fyrir 25 milljónir evra. Samningur hans við Bayern rennur út næsta sumar.

Samkvæmt heimildum Abendzeitung sér Thiago framtíð sína fyrir sér hjá Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.