Fotbolti.net
25.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Svarar Defoe: Hann valdi leikmennina sjálfur

Svarar Defoe: Hann valdi leikmennina sjálfur
Canon

Mynd: EPA

Jermain Defoe er hættur sem aðalþjálfari Woking eftir tæpa fjóra mánuði í starfinu og skilur yfirmaður fótboltamála ekki ákvörðunina.
Defoe tekur við ensku utandeildarliði
TENGT EFNI

Defoe tekur við ensku utandeildarliði

Defoe tók við Woking sem leikur í ensku utandeildinni og stýrði liðinu síðustu sex leiki síðasta deildartímabils. Í þeim leikjum náði Woking í níu stig og endaði um miðja deild.

Defoe sagði upp starfinu á miðju undirbúningstímabili og gaf út yfirlýsingu þess efnis að honum þætti ómögulegt að halda áfram í þessu starfi.

„Við gáfum honum allt sem hann bað okkur um," svaraði Jody Brown, yfirmaður fótboltamála hjá Woking.

„Ég valdi ekki einn einasta leikmann af þeim sem Jermain fékk til félagsins á sinni dvöl hérna. Hann stjórnaði þessu alveg sjálfur. Þetta eru allt leikmenn sem komu í gegnum tengiliðina hans Jermain. Við gáfum honum allt sem hann vildi svo það getur ekki verið að við höfum ekki staðið við gefin loforð."

Defoe, fyrrum framherji West Ham, Tottenham, Sunderland og enska landsliðsins, er 43 ára gamall og var þetta hans fyrsta starf sem aðalþjálfari.

Hættur eftir að hafa stýrt átta leikjum - „Ómögulegt að halda áfram"
TENGT EFNI

Hættur eftir að hafa stýrt átta leikjum - „Ómögulegt að halda áfram"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.