25.07.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kynntur sem nýr leikmaður Chelsea á næstu dögum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn fjölhæfi Valentín Barco verður kynntur sem nýr leikmaður Chelsea á næstu dögum.

TENGT EFNI
Barco til Chelsea: „Here we go!"
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano er meðal þeirra sem greina frá en Barco er 22 ára og var partur af landsliðshópi Argentínu sem fór á heimsmeistaramótið í sumar.
Barco hefur verið algjör lykilmaður í liði Strasbourg sem keypti hann úr röðum Brighton í fyrrasumar. Hann hreif í franska boltanum og ákvað Chelsea að festa kaup á honum. Það auðveldar fyrir skiptunum að Chelsea og Strasbourg eru systurfélög undir sama eignarhaldi.
Chelsea hefur verið í mikilli stórsókn á leikmannamarkaðinum í sumar og er búið að kaupa Morgan Rogers, Marco Palestra, Geovany Quenda, Emmanuel Emegha og Harrison Bettoni hingað til. Þeir kostuðu samtals yfir 210 milljónir punda og mun Barco kosta í kringum 35 milljónir.
Það verður afar áhugavert að fylgjast með hvernig Xabi Alonso vegnar við stjórnvölinn hjá Chelsea.