Fotbolti.net
25.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Segja Chelsea vera að krækja í þjálfara frá Villa

Segja Chelsea vera að krækja í þjálfara frá Villa
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports hefur það eftir Birmingham Live að leikatriðsþjálfarinn mikilsvirti Austin MacPhee sé á leið frá Aston Villa til Chelsea.
Portúgalska landsliðið ræður þjálfara frá Aston Villa
TENGT EFNI

Portúgalska landsliðið ræður þjálfara frá Aston Villa

Unai Emery stjóri og lærlingar hans í Aston Villa hafa verið duglegir við að hrósa MacPhee í viðtölum í gegnum tíðina, enda náði Villa frábærum árangri úr föstum leikatriðum á síðustu leiktíð og hefur MacPhee skiljanlega vakið áhuga hinna ýmsu stórvelda.

Hann hefur verið partur af þjálfarateyminu í Birmingham síðastliðin fimm ár og virðist vera spenntur fyrir að reyna fyrir sér á nýjum stað.

MacPhee er 46 ára Skoti og starfar einnig við að þjálfa föstu leikatriðin hjá portúgalska landsliðinu. Þar áður starfaði hann meðal annars hjá skoska landsliðinu, norður-írska landsliðinu og Hearts.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.