25.07.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar undir sinn fyrsta meistaraflokkssamning í Mosó

Ari fagnar með Óðni eftir sjöunda mark Aftureldingar gegn Ægi í síðasta mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hinn efnilegi Ari Hrafn Haraldsson hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu og er nú samningsbundinn út tímabilið 2028.
Ari, sem er 15 ára gamall og uppalinn hjá Aftureldingu, var með þessu að skrifa undir sinn fyrsta samning sem leikmaður meistaraflokks Aftureldingar.
Síðastliðinn vetur spilaði hann sinn fyrsta leik í meistaraflokki og skoraði jafnframt sitt fyrsta mark í æfingaleik gegn Haukum.

Í sumar hefur Ari komið við sögu í fjórum leikjum í Lengjudeildinni sem og í einum leik í Mjólkurbikarnum með meistaraflokki. Hann lagði upp sjöunda mark liðsins í 8-1 sigri á Ægi í lok síðasta mánaðar.
Þá hefur Ari spilað með 2. flokki auk þess sem hann var í liði 3. flokks sem endaði í öðru sæti á USA Cup á dögunum. Ari hefur einnig verið valinn á æfingar með yngri landsliðum Íslands.
„Afturelding fagnar því að Ari hafi framlengt samning sinn og spennandi verður að sjá hann taka áframhaldandi framförum í Mosfellsbæ næstu árin!" segir í tilkynningu félagsins.
Afturelding er á toppi Lengjudeildarinnar og á leið í bikarúrslit í fyrsta skipti í sögunni.