Fotbolti.net
25.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Otamendi leggur landsliðsskóna á hilluna

Otamendi leggur landsliðsskóna á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Varnarjaxlinn þaulreyndi Nicolás Otamendi hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir magnaðan feril með Argentínu.
Otamendi er 38 ára gamall og leggur skóna á hilluna eftir að Argentína tapaði úrslitaleik heimsmeistaramótsins gegn Spáni. Argentínumönnum mistókst þar með að verja titilinn sinn frá því fyrir fjórum árum.

Otamendi lék 139 landsleiki og vann Suður-Ameríkubikarinn í tvígang með Argentínu, auk þess að vinna HM 2022.

Otamendi hóf ferilinn í Argentínu en skipti svo yfir til Porto áður en hann var fenginn til Valencia þar sem hann skein og svo loks til Manchester City.

Hann lék yfir 200 leiki á fimm árum í Manchester og vann ensku úrvalsdeildina í tvígang og enska bikarinn einu sinni.

Otamendi er í dag samningsbundinn River Plate í heimalandinu.

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"
TENGT EFNI

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"

Otamendi leggur landsliðsskóna á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.