Fotbolti.net
25.07.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Idrissa Gueye fer til Sádi-Arabíu

Jordan Pickford og Iliman Ndiaye þurftu að stöðva Gueye frá því að ráðast frekar á Keane eftir að hafa slegið hann.

Jordan Pickford og Iliman Ndiaye þurftu að stöðva Gueye frá því að ráðast frekar á Keane eftir að hafa slegið hann.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn þaulreyndi Idrissa Gana Gueye virðist vera að yfirgefa ensku úrvalsdeildina í síðasta sinn á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta.
Gueye og Keane boxuðu og féllust síðan í faðma
TENGT EFNI

Gueye og Keane boxuðu og féllust síðan í faðma

Hann fer til Sádi-Arabíu eftir að samningur hans við Everton rann út í sumar, en Gueye fagnar 37 ára afmæli í september.

Gueye, sem er varnarsinnaður miðjumaður, kom með beinum hætti að fimm mörkum í 25 leikjum með Everton á síðustu leiktíð. Hann hefur var algjör lykilmaður á sjö árum hjá félaginu.

Hann gekk upprunalega til liðs við Everton eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni með Aston Villa tímabilið 2015-16. Everton greiddi riftunarákvæðið og reyndist Gueye algjör lykilmaður. Franska stórveldið Paris Saint-Germain keypti hann svo í sínar raðir sumarið 2019 fyrir 30 milljónir punda og snéri Gueye aftur til Everton fyrir gjafaprís þremur árum síðar, eftir að hafa spilað 111 leiki fyrir PSG.

Gueye, sem fékk rautt spjald fyrir að slá liðsfélaga sinn Michael Keane í sigri gegn Manchester United í nóvember í fyrra, er að skipta til Al-Diriyah sem eru nýliðar í efstu deildinni í Sádi-Arabíu. Þar gengur hann til liðs við fyrrum úrvalsdeildarleikmanninn Georges-Kévin Nkoudou sem var samningsbundinn Tottenham í þrjú ár, Óscar Rodríguez sem er uppalinn hjá Real Madrid og á tvo landsleiki að baki fyrir Spán, Frakkann öfluga Gaëtan Laborde og Omar Colley fyrrum miðvörð Sampdoria og Besiktas.

David Moyes, þjálfari Everton, kvaddi Gueye í gær og undirstrikaði mikilvægi hans í búningsklefanum. „Hann verður alltaf velkominn aftur til félagsins," sagði Moyes meðal annars.
Gueye var lykilmaður í liði Everton.

Gueye var lykilmaður í liði Everton.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.