Sara Björk eftir tapið: Ég get ennþá alveg spilað fótbolta

Sara Björk Gunnarsdóttir var mætt aftur í Haukabúninginn eftir 18 ára fjarveru.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir var mætt aftur í Haukabúninginn eftir 18 ára fjarveru.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka í 18 ár þegar liðið tapaði 2-0 gegn HK á BIRTU vellinum á Ásvöllum í 12. umferð Lengudeildarinnar.
Mikil eftirvænting hafði verið fyrir endurkomu Söru í Haukabúninginn og fjölmenntu vinir hennar og fjölskylda á völlinn.
„Það var mikill spenningur að spila aftur á Ásvöllum eftir svona mörg ár. Fjölskyldan kom og mikið af fólki sem ég þekki. Það var bara leiðinlegt að leikurinn fór eins og hann fór,“ sagði Sara Björk eftir leik.
„Við sköpuðum góð færi en vorum ekki alveg nógu gráðugar inni í teig og náðum ekki að hitta nógu vel á rammann.“
Haukar byrjuðu tímabilið af miklum krafti en liðið hefur átt erfitt uppdráttar í undanförnum leikjum. Sara segir mikilvægt að leikmenn endurheimti sjálfstraustið sem einkenndi liðið framan af sumri.
„Við þurfum bara að rífa okkur í gang. Þær spiluðu með miklu sjálfstrausti í fyrri hluta tímabilsins og við þurfum að fá það aftur. Það er búið að vera smá brekka en við erum að hrista upp í þessu og reyna að fá sjálfstraustið til baka.“
Sara kemur inn í lið Hauka eftir langan og farsælan atvinnumannaferil. Hún vonast til að geta miðlað af reynslu sinni og tekið að sér leiðtogahlutverk innan liðsins.
„Ég held að ég geti gefið þeim eitthvað af minni reynslu og miðlað henni áfram. Svo get ég ennþá alveg spilað fótbolta. Ég kem inn með reynslu, reyni að leiða gott af mér, hjálpa þeim og stýra þeim.“
Aðspurð um markmið Hauka út tímabilið var Sara skýr.
„Við skulum byrja á því að rífa okkur aðeins í gang og fara að vinna leik. Byrjum á því.“





