Fotbolti.net
24.07.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

5. deild: Dramatískt sigurmark á Stokkseyri

5. deild: Dramatískt sigurmark á Stokkseyri
Canon

Mynd: Stokkseyri

Stokkseyri 3 - 2 BF 108
1-0 Balthasar Alexandersson Eck ('20 , sjálfsmark)
1-1 Hjörtur Guðmundsson ('45 )
2-1 Arilíus Óskarsson ('65, víti)
2-2 Balthasar Alexandersson Eck ('75 )
3-2 Arilíus Óskarsson ('84 )
Stokkseyri og BF 108 áttust við í eina leik kvöldsins í 5. deild og náðu heimamenn forystunni með sjálfsmarki á 20. mínútu.

Hjörtur Guðmundsson jafnaði fyrir Boltafélagið skömmu fyrir leikhlé en Arilíus Óskarsson endurheimti forystu Stokkseyringa með marki úr vítaspyrnu á 65. mínútu.

Tíu mínútum síðar jafnaði Balthasar Alexandersson Eck muninn og bætti þar með upp fyrir sjálfsmarkið sem hann gerði í fyrri hálfleik.

Staðan var jöfn á lokakaflanum en Arilíusi tókst að gera sigurmark á 84. mínútu til að tryggja stigin þrjú. Lokatölur 3-2.

Þetta er afar dýrmætur stigur fyrir Stokkseyri sem fer aftur á sigurbraut eftir tvö jafntefli og tap í síðustu þremur leikjum. Liðið er í öðru sæti B-riðils með 21 stig eftir 11 umferðir, einu stigi á eftir toppliði Hamranna sem á tvo leiki til góða.

BF er með 14 stig.
5. deild: Dramatískt sigurmark á Stokkseyri
Canon

Mynd: Stokkseyri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Hamrarnir9+1322
2Stokkseyri11+1121
3RB11+516
4KB11-815
5BF 10810014
6Kría11-414
7Léttir10-912
8KM11-87
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.