Fotbolti.net
25.07.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Virkja ákvæðið hjá Anguissa - Ósáttur með De Bruyne

Virkja ákvæðið hjá Anguissa - Ósáttur með De Bruyne
Canon

Mynd: EPA

Giovanni Manna stjórnandi hjá Napoli svaraði spurningum varðandi lykilmenn liðsins.
De Bruyne: Ánægður að Conte sé farinn
TENGT EFNI

De Bruyne: Ánægður að Conte sé farinn

Hann ræddi meðal annars um André-Frank Zambo Anguissa, Kevin De Bruyne og Romelu Lukaku, auk Exequiel Zeballos sem gæti verið á leið til Ítalíu frá Boca Juniors.

„Við treystum Zambo Anguissa, hann er lykilmaður og við viljum hafa hann áfram í liðinu. Þess vegna virkjuðum við ákvæðið til að framlengja samninginn hans um eitt ár," segir Manna. Anguissa á því eitt ár eftir af samningi sínum við félagið sem stendur. Ítalskir fjölmiðlar segja þó að Anguissa hafi samþykkt lengri samning, út keppnistímabilið 2027-28 með möguleika á auka ári.

Anguissa, sem verður 31 árs í nóvember, hefur verið lykilmaður í liði Napoli frá komu sinni sumarið 2022 en hann missti af stórum hluta af síðustu leiktíð vegna meiðsla.

„Varðandi Kevin (De Bruyne) þá er engin ákvörðun sem þarf að taka. Leikmaðurinn er með eitt ár eftir af samningi, með möguleika á auka ári. Persónulega þá líkaði mér ekki við ummælin sem hann lét falla í maí og við munum ræða það saman þegar hann kemur aftur úr sumarfríi."

De Bruyne sagði í lok maí að hann væri ánægður að Antonio Conte væri farinn frá félaginu útaf því að hann spilaði alltof neikvæðan fótbolta. Belgíska stórstjarnan gekk til liðs við Napoli eftir að hafa fengið loforð um að liðið myndi spila sóknarþenkjandi fótbolta.

Varðandi Lukaku þá er framtíð hans óljós. Belginn, sem stóð sig vel á HM í sumar, er 33 ára gamall og með eitt ár eftir af samningi. Staða hans verður metin þegar hann snýr aftur úr sumarfríi ásamt landsliðsfélaga sínum De Bruyne.

Að lokum ræddi Manna um Zeballos sem er búinn að ná munnlegu samkomulagi við Napoli um kaup og kjör.

„Þetta er frábær kantmaður. Ef Boca Juniors getur beðið eftir tímasetningu sem hentar okkur, þá munum við kaupa Zeballos. Annars munum við snúa okkur að öðrum skotmörkum fyrir stöðuna."
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Virkja ákvæðið hjá Anguissa - Ósáttur með De Bruyne
Canon

Mynd: EPA

Virkja ákvæðið hjá Anguissa - Ósáttur með De Bruyne
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.