Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
Bragi Karl: Var ekki í hlutverkinu sem ég vildi vera í
Ingi Þór: Engir grínleikmenn að spila í minni stöðu hjá ÍA
„Fór í viðræður við fullt af klúbbum"
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Þriðji hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
   fös 25. ágúst 2023 21:49
Sverrir Örn Einarsson
Brynjar Björn: Lagar aðeins markatöluna okkar
Lengjudeildin
Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er ánægður með leikinn í heild sinni, við skorum sjö mörk sem var mjög kærkomið. Lagar aðeins markatöluna okkar og við vitum ekki hvað það mun enda. Gæti hjálpað okkur en kannski skiptir það ekki máli en fyrst og fremst bara ánægður með leikinn.“
Voru orð Brynjars Björns Gunnarssonar þjálfara Grindavíkur eftir 7-2 lærisveina hans á liði Ægis í kvöld.

Grindvíkingar leiddu 2-0 í hálfleik en fréttaritara fannst þó að liðið ætti talsvert inni hvað varðar frammistöðu. Í síðari hálfleik var liðið svo virkilega beitt fremst á vellinum en gaf á móti tvö klaufaleg mörk til baka.

„Við áttum inni eina til tvær ákarðanatökur bara. Þar sem við hefðum getað tekið betri ákvörðun, átt betri sendingar. Þegar við vorum að vinna boltann vorum við að tapa honum of fljótt aftur en við töluðum aðeins um það í hálfleik að passa boltann betur og að við myndum fá færi upp úr því.“

Stuðningsmenn Grindavíkur í Stinningskalda hafa verið líflegir í sumar og varð leikurinn í kvöld engin undantekning á því. Þeir voru þar mættir með flennistórann fána með mynd af framherjanum Edi Horvat og hvöttu hann sérstaklega til dáða. Þekkir Brynjar eitthvað s0guna á bakvið þetta uppátæki þeirra?

„Ég þekki hana ekki nei, þeir bara mættu hérna í dag á milli fjögur og fimm með þennan frábæra fána og kannski hjálpaði það Edi í dag sem skoraði tvö. Bara skemmtilegt fyrir hann og frábær stuðningur við hann og bara liðið í heild.“

Sagði Brynjar en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner