Láki eftir tap gegn Njarðvík: Við reyndum allt


Mynd: Raggi Óla


Mynd: Raggi Óla

Þór tapaði á heimavelli í kvöld gegn Njarðvík í Lengjudeildinni. Fótbolti.net ræddi við Þorlák Árnason þjálfara liðsins eftir tapið.
„Við lögðum upp með að byrja þetta vel þar sem Njarðvík hefur verið að skora snemma í fyrri hálfleik, sem við gerðum. Við fengum mjög gott færi í byrjun þegar Bjarni skýtur í stöngina. Svo skora þeir hrikalega ódýrt mark og svo annað í kjölfarið, þá var þetta mjög erfitt," sagði Láki.
„Við reyndum allt. Tókum þrjár skiptingar í hálfleik og vorum búnir með skiptingarnar snemma en það vantaði gæði á síðasta þriðjung til að troða inn marki."
Hver var pælingin á bakvið þrefalda skiptingu strax í hálfleik?
„Erum 2-0 undir á heimavelli þá er markmiðið að pressa á þá í seinni hálfleik og setja þetta fræga þriðja mark sem tókst ekki og á endanum skoruðu þeir það og kláruðu leikinn," sagði Láki.




