Fotbolti.net
25.09.13 - 10:37
Valur Páll Eiríksson

Fatih Terim sagt upp hjá Galatasaray (Staðfest)

Fatih Terim sagt upp hjá Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fatih Terim hefur verið sagt upp störfum hjá tyrkneska félaginu Galatasaray. Þessi ákvörðun var tekin á fundi stjórnarinnar í gær í kjölfar þess að Terim hafnaði á dögunum tveggja ára samningsboði frá félaginu.
Galatasaray hafa byrjað illa í tyrknesku deildinni og aðeins unnið einn leik af fyrstu fjórum í deildinni. Auk þess töpuðu Galatasaray fyrir Real Madrid 6-1 í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Margir stuðningsmenn Galatasaray mættu að mótmæla fyrir utan æfingasvæði liðsins í gær eftir að ákvörðunin var tilkynnt en Terim er í guðatölu hjá þeim. Terim hafði verið við stjórnvölin frá 2011 en hann stýrði Galatasaray einnig frá 1996 til 2000 og frá 2002 til 2004.
Hann hefur alls unnið sex meistaratitla sem stjóri Galatasaray, þar á meðal síðustu tvær leiktíðir.

Terim er sem stendur einnig þjálfari tyrkneska landsliðsins en hann tók tímabundið við í ágúst. Sá samningur rennur út eftir leiki gegn Eistlandi og Hollandi í október en Tyrkir eru í mikilli baráttu um umspilssæti. Það er því aldrei að vita nema hann taki alfarið við landsliðinu í kjölfar uppsagnarinnar hjá Galatasaray.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.