Þýska félagið Borussia Dortmund hefur krækt í framherjann Jamie Bynoe-Gittens frá Manchester City.
Bynoe-Gittens er 16 ára gamall og hefur spilað fyrir enska U17 landsliðið. Hann skrifaði undir langtímasamning við Dortmund.
Bynoe-Gittens fetar í fótspor Jadon Sancho sem yfirgaf Manchester City 17 ára gamall og fór til Dortmund í leit að meiri spiltíma. Sancho hefur slegið í gegn í Þýskalandi og er núna sterklega orðaður við Manchester United.
Bynoe-Gittens verður fyrst um sinn í U19 liði Dortmund en hver hvað framtíðin ber í skauti sér.
Athugasemdir