25.09.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Yfirlýsing City: Málið er enn í ferli

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City hefur gefið út stutta yfirlýsingu til fjölmiðla eftir að The Athletic greindi frá því að óháð nefnd hefði fundið félagið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í stóru máli sem höfðað var gegn félaginu fyrir brot á fjárhagsreglum úrvalsdeildarinnar.
Ekki hefur verið ákveðið hver refsingin fyrir brotin verður og líklegt þykir að City áfrýi niðurstöðunni.
Ekki hefur verið ákveðið hver refsingin fyrir brotin verður og líklegt þykir að City áfrýi niðurstöðunni.

TENGT EFNI
Manchester City fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum
„Málið er enn í ferli, ekki er búið að ganga frá mikilvægum þáttum og málið lýtur ströngum trúnaðarreglum. Af þessum sökum helst afstaða Manchester City FC óbreytt frá yfirlýsingunni sem félagið gaf út í febrúar 2023."
„Við höfum farið nákvæmlega eftir öllum reglum í átta ár í þeirri trú að stjórn og stjórnendur úrvalsdeildarinnar myndu starfa sem sjálfstætt, hlutlaust og sanngjarnt eftirlitsvald, laust við hlutdræg áhrif," segir í svari talsmanns City til fjölmiðla.
Hér að neðan má nálgast yfirlýsingu City frá 2023.