Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 25. nóvember 2019 19:06
Brynjar Ingi Erluson
Alfreð Már Hjaltalín í Leikni R. (Staðfest)
Alfreð Már Hjaltalín handsalar samninginn
Alfreð Már Hjaltalín handsalar samninginn
Mynd: Heimasíða Leiknis
Leiknir R. í Inkasso-deildinni samdi í dag við Alfreð Má Hjaltalín en hann gerði tveggja ára samning við félagið.

Alfreð er 25 ára gamall og uppalinn á Stykkishólmi en hann spilaði með VíkingI Ó. frá 2010 til 2017. Hann hóf ferilinn þar í 2. deild en þremur árum síðar var félagið komið upp í Pepsi-deildina.

Hann var síðast á mála hjá ÍBV og lék hann með liðinu í Pepsi-deildinni árið 2018 en var ekkert með í sumar vegna meiðsla.

Alfreð hefur æft með Leiknismönnum undanfarna daga og hefur hann nú skrifað undir tveggja ára samning. Hann annar leikmaðurinn sem félagið fær en Dagur Austmann samdi á dögunum.

Leiknir R. hafnaði í 3. sæti með 40 stig í Inkasso-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner