Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. nóvember 2021 21:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísak yngsti markaskorari í sögu Sambandsdeildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Bergmann Jóhannesson átti stórleik fyrir FC Kaupmannahöfn í kvöld er liðið lagði Lincoln Red Imps í Sambandsdeildinni 4-0.

Hann kom liðinu yfir og lagði síðan upp tvö mörk til viðbótar.

Þessi 18 ára gamli leikmaður er því yngsti leikmaðurinn til að skora í keppninni til þessa, þetta er fyrsta tímabilið sem þessi keppni fer fram.

FCK er komið áfram í 8 liða úrslit keppninnar en liðið mætir Slovan Bratislava í lokaumferðinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner