Fotbolti.net
26.01.24 - 14:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Afturelding að fá íslenskan varnarmann frá Brann

Í leik með U19 sumarið 2022.

Í leik með U19 sumarið 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Lengjudeildin
Afturelding er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að fá leikmann frá norska félaginu Brann.

Leikmaðurinn sem um ræðir er Aron Jónsson. Hann lék með Aftureldingu í Þungavigtarbikarnum gegn HK og skoraði þriðja mark liðsins í 3-1 sigri.

Hann er nítján ára miðvörður sem fæddur er í Bergen í Noregi. Hann er bæði með íslenskan og norskan ríkisborgararétt. Árið 2022 lék hann tvo vináttuleiki með íslenska U19 landsliðinu og ári áður hafði hann spilað einn leik með norska U17 landsliðinu.
Hann á að baki einn keppnisleik með Brann. Það var leikur í fyrstu umferð bikarsins árið 2022. Það ár fór Brann alla leið og vann bikarkeppnina.

Hann hefur þar fyrir utan leikið með varaliði Brann. Á síðasta tímabili skoraði Aron tvö mörk í 25 leikjum með í norsku C-deildini.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.