Fotbolti.net
26.01.24 - 21:50
Ívan Guðjón Baldursson

Enski bikarinn: Þarf að endurspila alla leikina

Enski bikarinn: Þarf að endurspila alla leikina
Canon

Mynd: EPA

Þremur fyrstu leikjum kvöldsins er lokið í enska bikarnum og lauk þeim öllum með jafntefli. Það þarf því að endurspila þá alla á öðrum velli.
Aston Villa fær því heimaleik gegn Chelsea eftir markalaust jafntefli á Stamford Bridge. Það var nokkuð jafn leikur sem átti sér stað á Brúnni þó að gestirnir hafi verið hættulegri og fengið mark dæmt af.

Bæði lið mættu til leiks með sterk byrjunarlið og var Chelsea sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Villa tók völdin á vellinum eftir leikhlé.

Nottingham Forest gerði þá markalaust jafntefli á útivelli gegn Championship-liði Bristol City. Hvorugu liði tókst að skora í jöfnum leik og verður viðureignin útkljáð í Nottingham.

Að lokum gerðu Sheffield Wednesday og Coventry 1-1 jafntefli í Championship slag og fær Coventry því heimaleik næst.

Gestirnir úr Coventry tóku forystuna undir lok fyrri hálfleiks en heimamenn í Sheffield jöfnuðu undir lokin í nokkuð jöfnum leik.

Sheffield er í fallbaráttu í Championship deildinni á meðan Coventry er í umspilsbaráttu.

Chelsea 0 - 0 Aston Villa

Bristol City 0 - 0 Nott. Forest

Sheffield Wed 1 - 1 Coventry
0-1 Victor Torp ('45 )
1-1 Djeidi Gassama ('84 )
Enski bikarinn: Þarf að endurspila alla leikina
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.