Fotbolti.net
26.01.24 - 09:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kalvin Phillips í West Ham (Staðfest)

Kalvin Phillips.

Kalvin Phillips.

Canon

Mynd: West Ham

Miðjumaðurinn Kalvin Phillips er genginn í raðir West Ham á láni frá Englands- og Evrópumeisturum Manchester City.
Phillips hefur aðeins spilað 31 leik fyrir City síðan félagið keypti hann á 45 milljónir punda frá Leeds í júlí 2022.

Crystal Palace, Newcastle, Juventus, Barcelona og Atletico Madrid höfðu einnig áhuga á honum en hann er að genginn í raðir West Ham þar sem hann fær möguleika til að spila meira fyrir Evrópumótið næsta sumar.

Í gær voru fréttir um það að West Ham hefði samið um ákveðna upphæð til þess að geta keypt hann næsta sumar, en svo er ekki. West Ham mun borga laun hans næstu mánuði og einnig lánsfé til Man City.

„Ég er mjög ánægður að vera hérna," sagði Phillips eftir að félagaskiptin voru tilkynnt. Hann mun klæðast treyju númer ellefu hjá nýja félaginu.

„Það er mikið að hlakka til hjá félaginu fyrir seinni hluta tímabilsins og ég get ekki beðið eftir því að taka þátt í því."

West Ham er sem stendur í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.