Fotbolti.net
26.01.24 - 10:44
Elvar Geir Magnússon

Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp hefur tilkynnt Liverpool að hann ætli að láta af störfum sem stjóri liðsins eftir tímabilið. Liverpool greinir frá þessu í tilkynningu á heimasíðu sinni.

Aðstoðarmenn hans munu einnig láta af störfum, þar á meðal Pepjin Lijnders sem ætlar að feta sína eigin braut sem knattspyrnustjóri.

Klopp tók við stjóri Liverpool í október 2015 en samnijngur hans átti að renna út 2026. Hann gerði Liverpool að Englandsmeistara 2019-20 eftir 30 ára bið félagsins. Tímabilið á undan vann Liverpool sjálfa Meistaradeildina.

Klopp segir á heimasíðu Liverpool að hann hafi tilkynnt stjórn félagsins um ákvörðun sína í nóvember. Hann segir að hann telji nauðsynlegt að tilkynna þetta tímanlega svo félagið fái svigrúm til að vinna í þjálfarabreytingunum.

Hann segist elska félagið, borgina og stuðningsmennina en finni að hann hafi ekki orku til að vinna þeta starf mikið lengur.

Fótbolti.net mun flytja fjölda frétta í dag með viðbrögðum við þessum stórtíðindum og fleira en hér að neðan má sjá viðtal við Klopp þar sem hann fer yfir þessa ákvörðun.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.