Mayra Ramirez í Chelsea á metfé (Staðfest)

Mayra Ramirez.

Mynd: EPA

Mayra Ramirez.

Mynd: EPA

Chelsea hefur gengið frá kaupum á kólumbíska sóknarmanninum Mayra Ramirez frá Levante á Spáni.
Levante segir frá kaupverðinu í yfirlýsingu á heimasíðu sinni. Kaupverðið er 450 þúsund evrur og gæti það hækkað í 500 þúsund evrur ef Ramirez tikkar í ákveðin box.
Hún er dýrasti leikmaður í sögu kvennaliðs Chelsea og verður dýrasta fótboltakona sögunnar ef kaupverðið fer upp í 500 þúsund evrur, eins og möguleiki er á.
Ramirez kemur til með að fylla í skarðið fyrir Sam Kerr sem er að glíma við erfið meiðsli.
Ramirez hefur heillað hjá Levante á þessu tímabili en hún hefur skorað sex mörk í sjö deildarleikjum á Spáni á leiktíðinni. Hún gerði 14 mörk á síðasta tímabili.
Chelsea er sem stendur á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með þriggja stiga forskot á Manchester City og Arsenal.