Mbappe fengi lægri laun í Madríd - Völdin tekin frá Ten Hag

Kylian Mbappe.

Mynd: EPA

Erik ten Hag, stjóri Manchester United.

Mynd: Getty Images

Armando Broja.

Mynd: EPA

Fer Benzema aftur til Real Madrid?

Mynd: EPA

Kylian Mbappe.

Mynd: EPA

Hérna kemur slúður dagsins en BBC tók saman það helsta. Mbappe, Benzema, Broja, Brobbey, Duran, Branthwaite og fleiri koma við sögu.
Kylian Mbappe (25) er með tilboð frá Real Madrid um að ganga í raðir spænska stórveldisins á frjálsri sölu næsta sumar. En svo er hann líka með annað tilboð frá Paris Saint-Germain og er hann óviss með það hvað hann ætlar að gera. (ESPN)
Ef Mbappe fer til Real Madrid, þá gæti það hjálpað Manchester United að krækja í Vinicius Junior (23), kantmann Real Madrid. (Mirror)
Mbappe er áhugasamur um að fara til Real Madrid en félagið er aðeins að bjóða um helminginn af þeim 70 milljónum evra á ári sem hann vill fá í laun. (Bild)
Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, hefur beðið félagið um að sækja sóknarmanninn Karim Benzema (35) aftur frá Al-Ittihad. (Sport)
Bayern München er í viðræðum við Galatasaray um franska hægri bakvörðinn Sacha Boey (23) en félagið er hætt að eltast við Kieran Trippier. (Le Parisien)
Chelsea er á meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á Jhon Duran (20), sóknarmanni Aston Villa, áður en janúarglugginn lokar. (Sky Sports)
Erik ten Hag, stjóri Manchester United, vill fá Brian Brobbey (21), sóknarmann Ajax, og Jarrad Branthwaite (21), miðvörð Everton, en hann fær ekki lengur að stjórna því hvaða leikmenn félagið sækir. Sir Jim Ratcliffe, sem keypti nýverið hlut í félaginu, ætlar að koma á nýju ráði innan félagsins sem sér um leikmannakaup. (Mirror)
Newcastle er að fylgjast vel með Morgan Gibbs-White (23), miðjumanni Nottingham Forest. (Football Insider)
Wolves er að bíða með að kaupa sóknarmanninn Armando Broja (22) frá Chelsea fyrir 30 milljónir punda þar sem félagið er að vinna við að rannsaka það hvort það muni standast fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar ef kaupin fara í gegn. (Mail)
Írska knattspyrnusambandið er vongott um að geta ráðið Lee Carsley, þjálfara enska U21 landsliðsins, sem nýjan landsliðsþjálfara sinn. (Independent)
Framherjinn Morgan Rogers (21) hefur mikinn áhuga á því að fara til Aston Villa en Middlesbrough hefur hafnað tveimur tilboðum frá Villa í hann. (Mail)
Crystal Palace er að nálgast kaup á kólumbíska hægri bakverðinum Daniel Munoz (27) frá Genk í Belgíu. (South London Press)
Blackburn ætlar að reyna að fá Jimmy Dunne (26), miðvörð QPR, í þessum mánuði. (Football Insider)
Fílabeinsströndin reyndi að fá Herve Renard, þjálfara franska kvennalandsliðið, á láni til að stýra liði sínu út Afríkukeppnina en franska knattspyrnusambandið hafnaði því. (L'Equipe)
Tottenham mun hugsanlega kalla miðjumanninn Tanguy Ndombele (27) til baka úr láni frá Galatasaray og senda hann á stað þar sem honum myndi líða betur. Rennes í Frakklandi og Al-Nassr í Sádi-Arabíu vilja fá hann. (Tuttomercatoweb)
Sunderland hefur mikinn áhuga á því að fá Amad Diallo (21) aftur til félagsins frá Manchester United en hann skoraði 14 mörk í 40 leikjum fyrir félagið á síðasta tímabili. (Manchester Evening News)
Ipswich Town, sem er að berjast um að komast upp í ensku úrvalsdeildina ætlar að reyna að fá íraska sóknarmanninn Ali Al-Hamadi (21) frá Wimbledon áður en glugginn lokar. (East Anglian Daily Times)