Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. febrúar 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Axlarmeiðsli Kolasinac alvarleg
Mynd: Getty Images
Sead Kolasinac, bakvörður Arsenal, fór meiddur af velli eftir 18 mínútur í 3-2 sigrinum á Everton um helgina.

Arsenal hefur nú greint frá því að meiðslin séu alvarleg en Kolasinac meiddist á öxl líkt og annar vinstri bakvörður, Kieran Tierney, gerði í leik fyrir áramót.

Bakverðirnir Tierney og Cedric Soares fara að snúa aftur í lið Arsenal á næstunni en Kolasinac verður frá í einhverjar vikur og jafnvel mánuði.

Hinn 18 ára gamli Bukayo Saka verður væntanlega áfram í bakverðinum í næstu leikjum en hann kom inn á fyrir Kolasinac um síðustu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner