Heimild: Vísir
Sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason snýr aftur í sérfræðingateymið á Stöð 2 Sport en þetta var opinberlega tilkynnt í dag.
Hjörvar verður í sjónvarpssal í kringum leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu.
Hann mun svo koma áfram að umfjöllun stöðvarinnar um Meistaradeild Evrópu og einnig um Pepsi Max-deild karla í sumar.
Hjörvar verður í sjónvarpssal í kringum leiki kvöldsins í Meistaradeild Evrópu.
Hann mun svo koma áfram að umfjöllun stöðvarinnar um Meistaradeild Evrópu og einnig um Pepsi Max-deild karla í sumar.
Real Madrid tekur á móti Manchester City og Lyon tekur á móti Juventus í kvöld.
„Sumarið verður risastórt hjá okkur á Stöð 2 Sport þar sem að Evrópumeistaramótið verður í aðalhlutverki frá 12. júní til 12. júlí. Það er því mikil fótboltaveisla á döfinni og ég fagna því að fá Hjörvar aftur inn í afar öflugt teymi sérfræðinga okkar," segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður Stöðvar 2 Sports.
Athugasemdir