Mikael Breki Þórðarson þreytti frumraun sína í Bestu deildinni 2023, spilaði svo þrjá deildarleiki 2024 og níu leiki í fyrra. Hann er efnilegur miðjumaður sem skoraði jöfnunarmark KA gegn Breiðabliki á síðasta tímabili.
Hann er unglingalandsliðsmaður; á að baki 13 leiki fyrir yngri landsliðin og framlengdi síðasta haust samning sinn við KA. Hann fór ungur að árum til æfinga hjá Midtjylland í Danmörku og var á reynslu hjá OB 2023. Í dag sýnir Mikael á sér hina hliðina.
Hann er unglingalandsliðsmaður; á að baki 13 leiki fyrir yngri landsliðin og framlengdi síðasta haust samning sinn við KA. Hann fór ungur að árum til æfinga hjá Midtjylland í Danmörku og var á reynslu hjá OB 2023. Í dag sýnir Mikael á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Mikael Breki Þórðarson
Gælunafn: Mike, Mikki
Aldur: 19 ára
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Spilaði minn fyrsta leik árið 2022 í bikarnum á móti Reyni Sandgerði, þetta var fyrsti leikur á nýju gervigrasi í KA og eins og hver annar dagur á Brekkunni setti Grímsi hann í skeytin
Uppáhalds drykkur: ískaldur hvítur monster
Uppáhalds matsölustaður: Saffran og Sykurverk deila þessu
Uppáhalds tölvuleikur: Spila lítið tölvuleiki í dag en prime Fortnite var sjúkur
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison break
Uppáhalds tónlistarmaður: Hlusta mikið á Drake, hann á einhvern veginn lag fyrir öll tilefni
Uppáhalds hlaðvarp: FM95blö
Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: .net
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi og Sveppi krull eru vel fyndnir
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Halldor minnir a tima kl: 15:30 thann 17.03.2026
Endurhaefingarstodin (s:4611330) Vinsamlegast latid vita i sima 4611330 ef thu kemst ekki. Skilaboð frá dóra sjúkraþjálfara, koma þessum ökkla í lag
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Þór
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Matias Siltanen var með unreal gæði
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið heppin með þjálfara í gegnum tíðina og þá hefur Hallgrímur Jónasson hjálpað mér gríðarlega mikið.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Sölvi stefánsson, óþolandi hvað hann var unplayable í yngri flokkunum, samt toppmaður
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Pabbi
Sætasti sigurinn: Bikar- og Íslandsmeistarar í 3 fl.
Mestu vonbrigðin: að meiðast undir lok síðasta tímabils og missa af lokakaflanum í Bestu, Evrópuverkefni með 2. flokki og landsliðsverkefni
Uppáhalds lið í enska: Liverpool, Slot out takk
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri til í að fá Jakob Gunnar heim
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Snorri Kristins og Siggi Nói efnilegir.
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Jónatan Arnarsson er vel huggulegur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Árdís Líf Eiðsdóttir
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Lionel Messi alltaf
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: myndi leyfa sóknarmanninum að njóta vafans
Uppáhalds staður á Íslandi: KA heimilið og Þingeyri
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Gleymi því seint þegar Jói markmaður fór á punktinn í 4. flokki.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: er með gameday rútínu sem ég geri alltaf eins, ætla samt að gatekeepa rútínuna.
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: pílan í desember og svo Andra Snæ ball í handboltanum
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial Vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Efnafræði. Fór á fund með stjórnendum á miðri önn til að droppa út, fékk það ekki. Slysast síðan til þess að fá 4,5 í lokaprófinu, held að kennarinn hafi leyft mér að slidea
Vandræðalegasta augnablik: fékk sólsting í leik með landsliðinu, vel óþægilegt og vandræðalegt
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: myndi bjóða Einsa, Sverri og Agli, myndi ræða við þá tölur um að koma á Brekkuna
Bestur/best í klefanum og af hverju: Kid Kári og Bjarki Fannar í KA, SO á Eysteinn Erni líka sá er unreal fyndinn.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Hendi Bjarka Fannari í Love Island væri fróðlegt að sjá og vonandi kæmi hann ekki einn heim.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: fæddist um 8 merkur, pínulítll
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Bjarki Fannar kom mér á óvart, hélt hann væri allt öðruvísi en hann er toppmaður.
Hverju laugstu síðast: hverjum ég myndi bjóða í mat, ef ég gæti boðið hverjum sem er myndi ég alltaf taka Messi, Neymar og Suarez í steik og benna
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: æfa föst leikatriði
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja eigendur LIV afhverju Klopp fékk aldrei að eyða svona miklu eins og Slot
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Mæta á völlinn og sköpum sturlaða stemningu. ÁFRAM KA
Athugasemdir



