mið 26.apr 2023 16:30 Mynd: KFG |
|
Spá þjálfara í 2. deild: 12. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. KFG, Knattspyrnufélagi Garðabæjar, er spáð neðsta sæti deildarinnar.
Halldór Orri Björnsson tók fram skóna og spilar með KFG í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12. KFG, 19 stig
Lokastaða í fyrra: KFG endaði í þriðja sæti 3. deildar í fyrra og því kannski ekki skrítið að liðinu sé spáð neðsta sæti 2. deildar í ár. KFG fór upp um deild eftir að ljóst varð að Kórdrengir myndu ekki taka þátt í Íslandsmótinu í ár. Þá fór Ægir upp í Lengjudeildina og KFG upp í 2. deild í leiðinni. KFG spilaði síðast í 2. deild árið 2019 og féll þá beint aftur.
Þjálfarinn: Bræðurnir Kristján og Björn Mássynir hafa stýrt liðinu lengi og þeir verða áfram við stjórnvölinn í sumar. Enginn þekkir liðið betur en þeir. Eru með mikið KFG-hjarta og eru í þessu verkefni af lífi og sál.
Álit Ástríðunnar:
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.
Um KFG segja þeir: KFG er og hefur alltaf verið stemningslið. Þeir fengu sæti í 2.deildinni að gjöf vegna þess að Kórdrengir drógu sig úr keppni. KFG hafa verið nálægt efstu sætunum í 3. deildinni undanfarin ár en alltaf klikkað þegar á reynir. Ástríðan elskar KFG því það getur alltaf allt gerst þegar þeir eiga í hlut. Verður fróðlegt að sjá hvernig þeir mæta inn í mótið í ár í sterkri 2. deild með unga leikmenn í bland við þá gömlu góðu. KFG mætir KV, Dalvík og Hetti/Huginn í fyrstu þremur umferðunum og þeir gætu byrjað sterkt.
Styrkleikar: Þéttur kjarni þar sem menn þekkja hvern annan vel. Mikið til Garðbæingar í liðinu og þjálfararnir verið lengi með liðið. Ungu strákarnir bæta við alvarleikann í liðinu með nokkrum af þeim eldri, koma inn með þetta 2. flokks mentality þar sem menn bara mæta á allar æfingar og leggja sig fram. Vonandi smitar það út frá sér og fleiri eldri leikmenn geri það líka.
Veikleikar: Margir af eldri lykilmönnum eiga það til að vera í þessu af hálfum hug. KFG þarf á öllum sínum mönnum að halda til þess að eiga séns á því að halda sér í deildinni í ár. Oft á tíðum er lítið plan hjá KFG og treyst á gæði leikmanna. Þegar það gengur þá gengur það vel en þegar á bjátar þá vantar upp á skipulag.
Lykilmenn: Jón Arnar Barðdal, Kári Pétursson og Tómas Orri Almarsson.
Gaman að fylgjast með: Ungu Stjörnumennirnir Sigurður Gunnar Jónsson, hafsent, og Hlynur Már Friðriksson, kantmaður, gætu sprungið út í sumar í stóru hlutverki.
Komnir
Bjarki Snær Sigurðsson frá KH
Dagur Orri Garðarsson frá Stjörnunni (á láni)
Eiður Orri Kristjánsson frá Álftanesi
Gunnar Orri Aðalsteinsson frá Stjörnunni
Halldór Orri Björnsson frá Stjörnunni
Húni Páll Gunnlaugsson frá KH
Róbert Kolbeins Þórarinsson frá Stjörnunni
Sigurður Atli Guðmundsson frá Stjörnunni
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni (á láni)
Tómas Ari Sigtryggsson frá Val
William Just frá Danmörku
Farnir
Henrik Máni B. Hilmarsson í Stjörnuna
Þjálfarinn segir - Kristján Másson
„Spáin kemur mér ekki mikið á óvart þar sem við komum óvænt í deildina. Við teljum okkur samt vera með hörkulið og sterkan kjarna sem hefur verið lengi saman ásamt nýjum sterkum leikmönnum og stefnan er klárlega að vera ekki í neinni fallbaráttu."
Fyrstu þrír leikir:
6. maí, KFG - KV (Samsungvöllurinn)
13. maí, Dalvík/Reynir - KFG (Dalvíkurvöllur)
20. maí, KFG - Höttur/Huginn (Samsungvöllurinn)