Christian Mbulu, leikmaður Morecambe í ensku D-deildinni, fannst látinn á heimili sínu í dag en þetta staðfestir lögreglan í Lancashire í kvöld.
Mbulu, sem var aðeins 23 ára gamall, fæddist á Englandi en hann lék með liðum á borð við Millwall, Motherwell og Crewe Alexandra áður en hann gekk til liðs við Morecambe í byrjun þessa árs.
Hann fannst látinn á heimili sínu í dag en ekki er talið að andlátið hafi borið með saknæmum hætti.
Jim McMahon, eigandi Motherwell, sendi frá sér tilkynningu í dag en hann var í áfalli yfir fréttunum.
„Við erum í losti yfir þessum fréttum af andláti Christian. Hann var vingjarnlegur ungur maður sem við elskuðum að hafa hérna á svæðinu. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans á þessum afar erfiðu tímum. Við vonum að allir sýni þeim tillitsemi og leyfi þeim að syrgja í friði," sagði McMahon.
Extremely sad to hear of the sudden passing of Christian Mbulu of Morecambe today aged only 23.
— Stan Collymore (@StanCollymore) May 26, 2020
Sincerest of condolences to his family and friends. Rest in peace Christian. pic.twitter.com/3A4K60xY2S
Athugasemdir