Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 26. maí 2022 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lee Grant lauk ferlinum hjá Manchester United
Mynd: Getty Images
Lee Grant hefur tilkynnt að hanskarnir séu komnir á hilluna en þessi 39 ára gamli markvörður var síðustu þrjú ar hjá Manchester United.

Hann gekk til liðs við félagið frá Stoke fyrir 1.5 milljónir punda en hann lék aðeins tvo leiki fyrir félagið.

Hann var á bekknum á síðustu leiktíð en oftar en ekki skráður sem þjálfari. Það er talið vera framtíðaráform hans að einbeita sér að þjálfun.

„Eftir 511 leiki hef ég ákveðið að þetta sé rétti tíminn til að hefja nýjan kafla á mínum ferli. Það hafa verið mörg skemmtileg augnablik ásamt nokkrum áskorunum en ég er þakklátur fyrir allt," sagði Grant í samtali við United.

Eins og hann segir lék hann 511 leiki á ferlinum, flesta í Championship deildinni en hann lék 31 leik fyrir Stoke í úrvalsdeildinni áður en hann gekk til liðs við United.


Athugasemdir
banner