Fotbolti.net
26.06.20 - 12:48
Elvar Geir Magnússon

Tilkynning Breiðabliks: Hún fór í einu og öllu að fyrirmælum yfirvalda

Mynd sem var tekin fyrir leik Breiðabliks og KR.

Mynd sem var tekin fyrir leik Breiðabliks og KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik vinnur náið með Almannavörnum og KSÍ eftir að leikmaður í kvennaliði félagsins <a href="https://fotbolti.net/news/25-06-2020/islandsmotid-i-uppnami-leikmadur-breidabliks-greind-med-covid-19" target="_blank">greindist með kórónaveiruna</a>. Áætlað er að yfir 200 manns þurfi að fara í sóttkví.

Breiðablik hefur sent frá sér yfirlýsingu sem sjá má hér að neðan.
Fréttatilkynning frá Knattspyrnudeild Breiðabliks

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur leikmaður Breiðabliks greinst með Covid-19 og hafa Almannavarnir og KSÍ þegar brugðist við, m.a. með frestun leikja og fyrirmælum um sóttkví leikmanna. Breiðablik vinnur náið með Almannavörnum og KSÍ og mun kappkosta að koma frekari upplýsingum á framfæri um leið og þær liggja fyrir.

Breiðablik hefur á undangengnum vikum lagt sig fram við að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum sóttvarnaryfirvalda varðandi nálægð, sóttvarnarhólf og fleira í öllu starfi félagsins. Félagið undirstrikar að leikmaðurinn sem um ræðir fór í einu og öllu að fyrirmælum yfirvalda. Nú vinna allir hluteigandi með yfirvöldum við að greina stöðuna og bregðast við.

Breiðablik mun að sjálfsögðu fylgja áfram fyrirmælum Almannavarna í einu og öllu og kappkosta að gera allt sem í sínu valdi stendur til að framfylgja þeim og grípa til allra nauðsynlegra ráðstafanna til að tryggja eins og kostur er öryggi okkar iðkenda, starfsfólks og annarra.

Félagið vill minna alla á að hafa í huga og fara eftir tilmælum yfirvalda um hreinlæti, handþvott og nálægð milli fólks og ítrekar að upplýsingum verður komið á framfæri þegar þær liggja fyrir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.