Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. júní 2022 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Frankfurt kaupir Alario af Leverkusen (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Evrópudeildarmeistarar Eintracht Frankfurt eru búnir að festa kaup á Lucas Alario, sóknarmanni Bayer Leverkusen.


Alario er 29 ára gamall og hefur skorað 58 mörk í 164 leikjum á fimm árum hjá Leverkusen auk þess að hafa gert 3 mörk í 9 landsleikjum fyrir Argentínu.

Hann mun bætast við skemmtilega sóknarlínu Frankfurt og leiða hana ásamt Rafael Santos Borré.

Frankfurt virkjaði ákvæði í samningi Alario og borgar 6,5 milljónir evra fyrir sóknarmanninn sem skoraði 6 mörk í 27 deildarleikjum á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner