Gylfi lentur í Washington

Gylfi að fara spila undir stjórn Rooney?

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson er sterklega orðaður við bandaríska félagið DC United og greinir The Sun á Englandi frá því að Gylfi sé kominn til höfuðborgarinnar.
Fjallað er um að þar muni Gylfi hitta fyrir sinn fyrrum liðsfélaga því Wayne Rooney er þjálfari liðsins og lék hann með Gylfa hjá Everton tímabilið 2017-18.

Ef Gylfi semur við DC þá verður hann liðsfélagi Guðlaugs Victors Pálssonar en þeir hafa leikið saman með íslenska landsliðinu.
Gylfi hefur ekki spilað fótbolta síðan á undirbúningstímabilinu fyrir tímabilið 2021/22. Hann var fyrst orðaður við DC árið 2020.
„Það hafa verið háværar sögusagnir um að Gylfi gæti farið í Val. Hugur Gylfa beinist víst frekar að Bandaríkjunum og Katar. Það er möguleiki á því að hann fari í bandarísku MLS-deildina og þá er víst áhugi frá Al Arabi í Katar. Þar sem Gylfi gæti orðið samherji Arons Einars Gunnarssonar," sagði Elvar Geir Magnússon í útvarpsþættinum Fótbolti.net.