Fotbolti.net
26.07.13 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

John Brayford til Cardiff (Staðfest)

John Brayford til Cardiff (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Cardiff City hefur fest kaup á John Brayford frá Derby County, en hann gerir fjögurra ára samning við félagið.
Brayford, sem er 25 ára gamall, lék 117 leiki fyrir Derby á ferlinum og lék þá alla leiki liðsins á síðustu leiktíð, en hann spilar sem hægri bakvörður.

Hann hafði verið í viðræðum við Cardiff í nokkra daga áður en félögin komust að samkomulagi um kaupverð.

Þetta eru önnur kaup Malky Mackay í sumar, en Andreas Cornelius kom frá FC Köbenhavn fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.