Fotbolti.net
26.07.13 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Juan Carlos Garcia til Wigan (Staðfest)

Juan Carlos Garcia í landsleik með Hondúras.

Juan Carlos Garcia í landsleik með Hondúras.

Canon

Mynd: Getty Images

Juan Carlos Garcia er fimmti leikmaðurinn frá Hondúras sem gengur til liðs við Wigan en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu.

Þessi 25 ára varnarmaður kemur frá Olimpia í heimalandinu og samþykkti þriggja ára samning við Wigan.
Wigan er í Championship-deildinni og hefur fengið til sín átta nýja leikmenn í sumar.

Maynor Figueroa, Wilson Palacios, Hendry Thomas og Roger Espinoza eru aðrir leikmenn Wigan sem eru frá Hondúras.

„Við höfum góða reynslu af landsliðsmönnum frá Hondúras. Juan er hæfileikaríkur leikmaður, kraftmikill vinstri bakvörður. Það er ánægjulegt að fá hann í okkar raðir,\" segir Owen Coyle, stjóri Wigan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.