26.07.13 - 11:04
Daníel Freyr Jónsson
Nacer Chadli til Tottenham (Staðfest)

Nacer Chadli.

Mynd: Getty Images

Nacer Chadli.

Mynd: Getty Images
Tottenham hafa klárað kaupin á vængmanninum Nacer Chadli frá FC Twente fyrir 7 milljónir punda.
Þessi 23 ára gamli leikmaður var í þrjú ár í herbúðum Twente. Hann skoraði meðal annars tvö mörk gegn Tottenham í tveimur leikjum þegar liðin mættust í Meistaradeild Evrópu árið 2010.

Hann er nú mættur til Hong Kong þar sem Tottenham mætir úrvalsliði Suður-Kína á morgun.
Chadli á að baki 14 landsleiki fyrir hönd Belgíu, en hann er að marokkóskum uppruna og lék einu sinni óopinberan leik með landsliði Marokkó.
Sem fyrr segir spilar Chadli sem vængmaður, en hann hefur reglulega verið notaður sem framherji í landsleikjum. Hann gæti fyllt upp í það skarð á vængnum sem Gareth Bale skildi eftir sig eftir að Walesverjinn fór að spila inn á miðri miðjunni undir lok síðasta tímabils.