Fotbolti.net
26.07.15 - 19:54
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: Garðabæ

Jeppe: Gott að spila með alvöru framherja

Auglýsing
Jeppe Hansen var maður leiksins í dag.

Jeppe Hansen var maður leiksins í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jeppe Hansen, danski framherjinn í liði Stjörnunnar var hæst ánægður með 3-0 sigur liðsins gegn ÍBV í dag.

Jeppe skoraði tvö mörk og átti mjög góðan leik.
„Ég er mjög glaður, loksins unnum við heimaleik. Við áttum skilið að vinna ÍA og við áttum skilið að vinna í dag.\"

„Við stóðum okkur mjög vel í dag, við sköpuðum mörg færi sem er búið að vera vandamál hjá okkur í síðustu tíu leikjum.\"

Jeppe er mjög ánægður með framlag Ólafs Karls Finsen og Guðjóns Baldvinssonar.

„Óli Kalli er búinn að vera sjóðheitur og við Guðjón gerum hvorn annan betri. Það er gott að spila með alvöru framherja sem kemur með hlaup sem ég þekki.\"

Jeppe hefði með smá heppni skorað þrennu í dag.

„Ég hefði kannski átt að skora eitt í viðbót, ég reyndi, en ekki í dag.\"

Jeppe er sérstaklega ánægður með að loksins vinna heimaleik.

„Við fáum mjög góðan stuðning, sérstaklega á heimavelli, við hefðum átt að sigra hér fyrr. Við vorum mikið betri gegn ÍA en þetta tókst loksins í dag.\"

„Við náðum seinna markinu sem var mikilvægt. Við spiluðum svipaðan leik og gegn ÍA en okkur leið vel eftir annað markið,\" sagði daninn geðþekki að lokum.

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.