
Miðvörðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir hefur framlengt samning sinn við Inter á Ítalíu.
Hún er búin að skrifa undir samning sem gildir út næstu leiktíð, til ársins 2023.
Anna Björk, sem er uppalin hjá KR, gekk í raðir Inter í fyrra og spilaði hún í heildina átta leiki með liðinu í ítölsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Anna hefur einnig leikið með Stjörnunni og Selfossi hér heima. Erlendis hefur hún leikið með Örebro og Limhamn Bunkeflo í Svíþjóð, PSV í Hollandi og Le Havre í Frakklandi.
Hún ætlar núna að halda áfram vegferð sinni með Inter, sem er mjög stórt félag á Ítalíu.
Inter hafnaði í fimmta sæti ítölsku deildarinnar á síðasta tímabili.
Another year with the Nerazzurri 🖤💙#AnnaBjörk2023 #ForzaInter #InterWomen pic.twitter.com/dGklMo505F
— Inter Women (@Inter_Women) July 26, 2022
Athugasemdir