Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júlí 2022 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Mukiele búinn að kveðja - Chelsea reyndi að stela honum
Mynd: EPA

Bakvörðurinn öflugi Nordi Mukiele er búinn að kveðja stuðningsmenn RB Leipzig sem skilaboðum á samfélagsmiðlum.


Mukiele er staddur í París þessa stundina þar sem hann gengur frá félagaskiptum til PSG.

Frakklandsmeistararnir greiða um 15 milljónir evra fyrir Mukiele sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Leipzig.

Fabrizio Romano greinir frá því að Chelsea reyndi að stela Mukiele um helgina en mistókst ætlunarverk sitt. Leikmaðurinn kaus að fara frekar til PSG þar sem hann mun berjast við Achraf Hakimi um sæti í byrjunarliðinu.


Athugasemdir
banner
banner