Fotbolti.net
26.07.23 - 23:11
Elvar Geir Magnússon

Jökull ánægður með þróun Stjörnunnar: Stígandi í ansi marga leiki

Auglýsing
Jökull ánægður með þróun Stjörnunnar: Stígandi í ansi marga leiki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan var miklu betra liðið frá fyrstu mínútu þegar það rúllaði yfir Fram á Samsung vellinum í kvöld. Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, mætti í viðtal við Fótbolta.net.
„Þetta var mjög góður leikur, við vorum með mikla stjórn. Ef maður leitar að einhverju hefði maður viljað sjá okkur enn meira með boltann í fyrri hálfleik og aðeins skarpari í ákvarðanatökum," segir Jökull.

Hann segir að mjög margir leikmenn hafi sýnt frábæra frammistöðu í kvöld, sem er svo sannarlega rétt, það hafi verið góður stígandi í sínu liði.

Undirritaður spurði hann út í Róbert Frosta Þorkelsson sem skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild.

„Hann hefur meira gaman að því að gefa stoðsendingar en hann er að átta sig á því að ef hann fer að skjóta á markið gætu mörkin komið í kjölfarið líka."

Í viðtalinu ræðir Jökull nánar um leikinn í kvöld, um frammistöðuna á heimavelli og kemur meðal annars inn á spilamennsku Jóhanns Árna Gunnarssonar sem hefur verið frábær upp á síðkastið og var valinn maður leiksins í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.