„Samkvæmt öllu hefði UEFA dæmt Blikum 3-0 sigur"

FCK fagnar marki í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FCK fagnar marki í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og við sögðum frá í morgun þá var FC Kaupmannahöfn nálægt því að setja inn á varamann gegn Breiðabliki sem var ekki skráður á skýrslu í leiknum.
Það vakti athygli fréttamanna Fótbolta.net undir lok leiks að gestirnir frá Danmörku ætluðu að skipta Oscar Höjlund, yngri bróðir Rasmus, inn á völlinn.
Höjlund var hins vegar ekki skráður á skýrslu á vefsíðu UEFA frá leiknum.
Höjlund kom þó ekki inn á. FCK ætlaði að skipta honum inn á í uppbótartímanum en það varð ekkert af skiptingunni þar sem boltinn fór ekkert úr leik eftir að hann gerði sig kláran.
Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, birti tíst í morgun þar sem hann sagði frá því að FCK hefði samkvæmt öllu tapað leiknum 3-0 ef Höjlund hefði komið inn á og ekki verið á skýrslu.
„Samkvæmt öllu hefði UEFA dæmt Blikum 3-0 sigur. FCK mun fá sekt en sérstakt að klúðra þessu í dag þegar allt saman er orðið rafrænt. Minnir að Legia Varsjá hafi fallið úr keppni og misst af riðlakeppni vegna svona mistaka," segir Birgir.
Það er rétt, Legia Varsjá var árið 2014 dæmt úr leik í Meistaradeildinni eftir að liðið tefldi fram ólöglegum leikmanni gegn Celtic.
Uppfært: Fótbolti.net hefur fengið þær upplýsingar að Oscar Höjlund hafi í raun verið skráður á skýrslu en vegna mistaka hafi hann ekki verið skráður á heimasíðu UEFA. Það hefði því engu breytt fyrir úrslit leiksins ef hann hefði komið inn á.

https://t.co/ZU2pQ7kiso
— Birgir Jóhannsson (@biggijo) July 26, 2023
Samkvæmt öllu hefði Uefa dæmt Blikum 3-0 sigur. FCK mun fá sekt en sérstakt að klúðra þessu í dag þegar allt saman er orðið rafrænt. Minnir að Legia Varsjá hafi fallið úr keppni og misst af riðlakeppni vegna svona mistaka.