Fotbolti.net
26.08.13 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Stephane Mbia lánaður frá QPR til Sevilla (Staðfest)

Stephane Mbia lánaður frá QPR til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kamerúnski miðjumaðurinn Stephane Mbia hefur verið lánaður frá Championship liði QPR til Sevilla.

Mbia er 27 ára og kom til QPR fyrir ári frá Marseille. Hann lék 32 deildarleiki er QPR féll, en þessi leikmaður hafði verið orðaður við Arsenal áður en hann fór til QPR.
Mbia er enn eitt stóra nafnið sem yfirgefur QPR eftir fall félagsins, en Loic Remy, Adel Taarabt og Esteban Granero hafa allir fundið ný félagslið.

Mbia hóf ferilinn sem miðvörður hjá Rennes en spilar yfirleitt á miðjunni. Hann á yfir 40 landsleiki að baki fyrir Kamerún.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.