Fotbolti.net
26.08.20 - 18:27
Stefán Marteinn Ólafsson

Byrjunarlið HK og Gróttu: Valgeir ekki með

Valgeir Valgeirsson verður ekki með HK í kvöld.

Valgeir Valgeirsson verður ekki með HK í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 19:15 tekur HK á móti gestum sínum í Gróttu í 12.umferð Pepsi Max deildar karla.

HK situr fyrir þennan leik í 9. sæti deildarinnar með 11 stig og geta með sigri spyrnt sér aðeins frá rauðu línunni sem gestirnir í Gróttu sitja undir en þeir eru í 11.sæti með 6 stig og geta með sigri jafnað KA að stigum.
Byrjunarliðin eru klár en þau má sjá hér fyrir neðan.

HK gerir 2 breytingar á sínu liði en inn koma Þórður Þorsteinn Þórðarson og Stefan Alexander Ljubicic fyrir Valgeir Valgeirsson og Arnþór Ara Atlason.

Grótta geri þá líka breytingar á sínu liði en inn koma Bjarki Leósson, Kristófer Orri Pétursson og Karl Friðleifur Gunnarsson fyrir Patrik Orra Pétursson, Kristófer Melsted og Axel Freyr Harðarson.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið HK 

25. Arnar Freyr Ólafsson (m) 

2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson 

4. Leifur Andri Leifsson (f) 

7. Birnir Snær Ingason 

11. Ólafur Örn Eyjólfsson 

17. Jón Arnar Barðdal 

19. Ari Sigurpálsson 

21. Ívar Örn Jónsson

22. Þórður Þorsteinn Þórðarson


26. Martin Rauschenberg

28. Stefan Alexander Ljubicic






Byrjunarlið Gróttu 

1. Hákon Rafn Valdimarsson 

2. Arnar Þór Helgason 

3. Bjarki Leósson

6. Sigurvin Reynisson (f) 

7. Pétur Theódór Árnason 

9. Axel Sigurðarson

10. Kristófer Orri Pétursson

20. Karl Friðleifur Gunnarsson


21. Óskar Jónsson 

22. Ástbjörn Þórðarson 

25. Valtýr Már Michaelsson 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.