Hólmar: Öll mörkin barnaleg og klaufaleg

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við vera með leikinn í höndunum í fyrri hálfleik, spiluðum fínan bolta miðað við aðstæður og sköpuðum fullt af færum. Okkur leið mjög vel með leikinn í hálfleik en við fáum á okkur þrjú mörk og þau eru öll frekar barnaleg og klaufaleg sem á ekki að gerast," sagði Hólmar Örn Eyjólfsson miðvörður Vals eftir 3 - 2 tap úti gegn FH í Bestu-deildinni í kvöld.
„Eftir að við fengum þessi mörk á okkur í seinni hálfleik varð þetta slitinn leikur og ekki nógu gott hjá okkur," sagði Hólmar en á Arnari Grétarssyni þjálfara Vals mátti heyra að hann hafi ekki verið ánægður með liðið í stöðunni 3-2. Hvað gerðist?
„Fljótt eftir leik er erfitt að segja en það er ákveðið högg að fá þessi tvö mörk með stuttu millibili á sig. Ég á eftir að fara betur yfir þetta til að sjá hvað gerist. Það slitnaði uppúr þessu hjá okkur og FH-ingar efldust."
Aðstæður í Kaplakrika voru ekki góðar í dag en pollar voru út um allan völl. Fyrsta mark FH kom eftir að Hólmar reyndi að gefa til baka á Svein Sigurð í markinu en boltinn stoppaði í polli á leiðinni og Davíð Snær Jóhannsson náði honum og skoraði. Las Hólmar vitlaust í aðstæður þar?
„Ég á bara að vita betur. Maður gerir hluti sjálfkrafa þegar maður lendir í ákveðnum stöðum. Það voru barnaleg mörk sem við fengum á okkur og þegar það eru pollar hér og þar á vellium á ég að vita betur og lúðra honum upp sjálfur í staðinn fyrir þetta," sagði Hólmar en er hann svekktur með sjálfan sig í hinum mörkunum?
„Já aðeins í þriðja markinu og þá varnarlínan sem heild. Við eigum að vera þéttari og eigum auðveldlega að geta komið í veg fyrir þetta. Ég er að fara að pressa Björn Daníel og það er einn bakvið hann sem ég ætla að taka. Hann hoppar yfir boltann og þá fer hann framhjá mér og í gegn. Góð finta hjá honum en FH-ingar eru líka 11 inni á vellinum og þeir gera vel í því sem þeir gera. Þeir hlupu allir hver fyrir annan og voru fastir fyrir. Þeir spiluðu vel miðað við aðstæður."
Valur tapaði 0-4 heima gegn Víkingi í síðustu umferð og þar á undan var 1-1 jafntefli gegn botnliði Keflavíkur. Að hverju er Valur að keppa núna eftir þrjú vonbrigði í röð?
„Við erum auðvitað að reyna að klára þetta annað sæti, við ætlum að fara í Evrópu á næsta ári og erum að gíra okkur í það," sagði Hólmar en hvernig sér hann síðustu vikur, hefur þetta verið erfitt?
„Já þetta er búið að vera þrír lélegir leikir í röð. Við höfum viku fram að næsta leik til að þjappa okkur saman og gera betur."
Að lokum var Hólmar spurður út í atvik í síðsta leik gegn Víkingi sem hefur verið rætt í fjölmiðlum og hann er sjálfur í senunni. Hann var beðinn um sína sýn á málið.
„Þetta lítur töluvert verr út á þessu videoi en þetta var. Ef þú talar við dómara leiksins og Erling sjálfan munu þeir taka undir það. Hann er að blokka mig og ég ætla að reyna að rífa mig lausan. Ég enda óvart á því, algjört óviljaverk, að fara í andlitið á honum með opinn lófa. Þetta var töluvert minna mál heldur en hefur verið gert úr þessu," sagði Hólmar en myndi koma honum á óvart að fá leikbann?
Já, það myndi koma mér á óvart," sagði hann að lokum.








