Fotbolti.net
26.09.20 - 13:23
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Fyrsta stig Darmstadt kom gegn Regensburg

Þýskaland: Fyrsta stig Darmstadt kom gegn Regensburg
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Darmstadt 0 - 0 Regensburg</b>
Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn er Darmstadt náði í sitt fyrsta stig á nýju tímabili í þýsku B-deildinni.

Guðlaugur Victor og félagar tóku á móti Regensburg í afar fjörugum leik þar sem hvorugu liði tókst að skora þrátt fyrir mörg tækifæri. Í heildina áttu liðin rúmlega 30 marktilraunir í leiknum.

Victor er fyrirliði Darmstadt sem endaði í fimmta sæti á síðustu leiktíð, aðeins þremur stigum frá umspilssæti fyrir efstu deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.