Tottenham er búið að jafna metin gegn Olympiakos í Meistaradeildinni. Tottenham lenti 2-0 undir að 20 mínútum liðnum, en staðan er núna 2-2.
Sjá einnig:
Mourinho nóg boðið og tók Dier út af í fyrri hálfleik
Harry Kane skoraði jöfnunarmarkið á 50. mínútu, en boltastrákur átti stóran þátt í markinu. Boltastrákurinn var fljótur að koma boltanum á Serge Aurier sem tók snöggt innkast á Lucas Moura.
Brasilíumaðurinn Moura sendi boltann fyrir á Kane sem skoraði.
Markið má sjá hérna.
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, þakkaði boltastráknum innilega fyrir. Það má sjá hérna.
Athugasemdir