Tony Pulis er tekinn við Middlesbrough í Championship deildinni. Pulis var látinn fara frá West Brom fyrr á tímabilinu.
Middlesbrough er í áttunda sæti deildarinnar, aðeins þremur stigum frá umspilsbaráttunni.
Middlesbrough er í áttunda sæti deildarinnar, aðeins þremur stigum frá umspilsbaráttunni.
Yfirlýst markmið félagsins er að komast upp í úrvalsdeildina og fær Pulis það verðuga verkefni að koma liðinu upp.
Stjórinn verður í stúkunni er liðið mætir Bolton í dag en fyrsti leikur hans við stjórnvölinn verður 30. desember, á heimavelli gegn Aston Villa.
Pulis verður sextugur í janúar og hefur stýrt Stoke, Crystal Palace og West Brom undanfarinn áratug.
Athugasemdir