Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. janúar 2021 20:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Lág fyrirgjöf McNeil endaði í netinu
Mynd: Getty Images
Burnley vann virkilega flottan sigur á Aston Villa á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Aston Villa var sterkari aðilinn í leiknum og komst tvisvar yfir; í 1-0 og 2-1. Jack Grealish kom Villa í 2-1 á 68. mínútu en svo umturnaðist á leikurinn á skömmum tíma.

Dwight McNeil jafnaði metin á 76. mínútu og Chris Wood skoraði síðan sigurmarkið á 79. mínútu.

Mark McNeil var frekar athyglisvert en hann ætlaði að senda boltann fyrir. Það virðist nokkuð augljóst. Lág fyrirgjöf hans fór hins vegar í gegnum allan pakkann og endaði í netinu. Emiliano Martinez, markvörður Aston Villa sem hefur átt mjög gott tímabil, leit ekki sérstaklega vel út í markinu.

Markið má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner