Búnir að lána Everton meira en 160 milljónir punda

Mynd: EPA

Mynd: EPA
777 Partners er að reyna að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið Everton og hefur verið að dæla peningum til félagsins til að stöðva það frá því að fara í greiðslustöðvun.
Fjárfestingafyrirtækið lánaði Everton 13 milljónir punda á dögunum og hefur þar af leiðandi lánað félaginu rúmlega 160 milljónir í heildina.
777 er að bíða eftir að enska úrvalsdeildin gefi svar við því hvort fyrirtækið megi kaupa hlut í Everton eða ekki, en ljóst er að Farhad Moshiri eigandi hefur komist að samkomulagi við fyrirtækið um kaupverð.
Búist var við að 777 Partners yrðu tilkynntir sem nýir eigendur Everton fyrir áramót, en það gekk ekki upp.