Fotbolti.net
27.01.24 - 11:00
Ívan Guðjón Baldursson

Tottenham undirbýr risatilboð fyrir Gallagher

Tottenham undirbýr risatilboð fyrir Gallagher
Canon

Mynd: EPA

Powerade
Janúarglugginn er að ganga síðustu metrana og er slúðurpakkinn innihaldsríkur að sinni. Þar berst talið að mönnum á borð við Conor Gallagher, Victor Osimhen, Kiernan Dewsbury-Hall og José Mourinho.

Brighton er í viðræðum við Leicester City um kaup á miðjumanninum Kiernan Dewsbury-Hall, 25. (Sky Sports)

Leicester vill 30 milljónir fyrir Dewsbury-Hall og eru Brentford, Arsenal og Fulham einnig áhugasöm. (Athletic)

Tottenham er að undirbúa 80 milljón punda tilboð á lokadögum janúargluggans, til að kaupa miðjumanninn kröftuga Conor Gallagher, 23, frá Chelsea. (Football Insider)

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur gert Victor Osimhen að skotmarki númer 1. (Teamtalk)

José Mourinho verður ekki næsti þjálfari Napoli þrátt fyrir orðróm. (Marca)

Mónakó er í viðræðum við Arsenal um að fá Fabio Vieira, 23, lánaðan út tímabilið. (Football Transfers)

FC Bayern hefur náð samkomulagi við Galatasaray um félagsskipti Sacha Boey, 23 ára hægri bakvarðar. (Fabrizio Romano)

Coventry ætlar að hafna öllum tilboðum í Callum O'Hare, 25 ára sóknarsinnaðan miðjumann sinn. Burnley, Southampton og Leicester hafa sýnt honum áhuga. (Football Insider)

Lee Carsley, landsliðsþjálfari U21 landsliðs Englands, hafnaði því að taka við írska A-landsliðinu á dögunum. Carsley er írskur og lék fyrir landsliðið á sínum tíma sem leikmaður, en hann vonast til að verða næsti landsliðsþjálfari Englands eftir Gareth Southgate. (Daily Mail)

Zinedine Zidane, sem hefur rætur frá Alsír, hafnaði tækifæri á að taka við alsírska landsliðinu. (L'Equipe)

Liverpool er ekki búið að taka neina ákvörðun varðandi arftaka Jürgen Klopp hjá félaginu. (Telegraph)

Xabi Alsono hjá Bayer Leverkusen er talinn efstur á lista, en Roberto De Zerbi hjá Brighton og Ange Postecoglou hjá Tottenham koma einnig til greina. (Times)

Stórstjörnur á borð við Virgil van Dijk, 32, Mohamed Salah, 31, og Trent Alexander-Arnold, 25, gætu yfirgefið Liverpool eftir brottför Klopp. (Talksport)

Manchester United og Liverpool hafa bæði áhuga á sóknarsinnuðum miðjumanni Genk í Belgíu. Sá heitir Bilal El Khannouss. (Football Transfers)

AC Milan ætlar að binda endi á lánssamning Divock Origi, 28, sem er hjá Nottingham Forest en hefur lítið fengið að spila á tímabilinu og er að glíma við meiðsli sem stendur. Milan er búið að finna kaupanda fyrir leikmanninn, MLS félagið Los Angeles FC. (Sky Sports)

West Ham er í viðræðum við Real Betis um möguleg félagsskipti Pablo Fornals, 27, aftur í spænska boltann. (Mundo Deportivo)

West Ham þarf að borga 17 milljónir punda til að kaupa Ibrahim Osman, 19 ára ungstirni Nordsjælland sem hefur verið að skína skært í danska boltanum. Hamrarnir vilja fjármagna kaupin með því að selja Said Benrahma, 28, til Marseille eða Sádi-Arabíu. (Guardian)

Burnley er að ganga frá kaupum á Maxime Esteve, 21 árs varnarmanni Montpellier í Frakklandi. Hann kostar um 10 milljónir punda. (L'Equipe)
Tottenham undirbýr risatilboð fyrir Gallagher
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham undirbýr risatilboð fyrir Gallagher
Canon

Mynd: EPA

Tottenham undirbýr risatilboð fyrir Gallagher
Canon

Mynd: EPA

Tottenham undirbýr risatilboð fyrir Gallagher
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.