Á heimasíðu Vestra fyrr í kvöld var greint frá liðsstyrk sem karlalið félagsins hefur fengið. Sigurður Grétar Benónýsson skrifaði undir samning við liðið í dag.
Sigurður hefur verið við nám í Bandaríkjunum en hann lék 23 leiki með ÍBV í efstu deild á árunum 2016-2018.
Sigurður er fæddur árið 1996 og verður 24 ára á árinu. Hann kemur til landsins í mars og fer með Vestra í æfingaferð.

Sigurður, sem er framherji, hefur alls leikið 39 leiki með ÍBV og KFS í deild og bikar. Hann hefur skorað tíu mörk í þeim leikjum.
Vestri varð í öðru sæti 2. deildar síðastliðið sumar og leikur því í næstefstu deild á komandi leiktíð.
Athugasemdir